Formúla 1

Klúður Ferrari reyndist happ Hamiltons

Lewis Hamilton jók forskot sitt í stigamótinu í Singapúr í gær úr einu stigi í sjö.
Lewis Hamilton jók forskot sitt í stigamótinu í Singapúr í gær úr einu stigi í sjö. mynd: Getty Images

Lewis Hamilton varð að lúta í lægra haldi fyrir Fernando Alonso, fyrrum liðsfélaga sínum hjá McLaren á Singapúr brautinni í gær. En Hamilton jók hinsvegar forskot sitt í stigakeppninni eftir tvöfalt klúður Ferrari í mótinu.

Fyrst tapaði Massa af mögulegum sigri, þegar þjónustumaður gerði mistök og sendi Massa af stað úr þjónustuhléi án þess að bensínáfyllingu væri lokið. Ferrari notar eitt liða ljósabúnað í þjónusuhléum, en önnur lið eru með mann á skilti sem lyftir því upp þegar hléi er lokið. Massa óð af stað í veg fyrir annan ökumann með bensínslönguna fasta við bílinn. Hann fékk refsingu og átti í sér aldrei viðreisnar von, enda kominn í neðsta sætið hvort sem er.

Næstu mistök Ferrari manna voru undir lok mótsins þegar Kimi Raikkönen keyrði á vegg þegar fjórir hringir voru eftir og féll úr leik. Ferrari menn voru því sjálfum sér verstir í þessu móti. Hvorugur ökumaður fékk stig í stigakeppni ökumanna og McLaren náði forystu í stigakeppni bílasmiða.

Hamilton náði þriðja sæti í mótinu og fékk 6 dýrmæt stig í kapphlaupinu við Massa í keppni ökumanna. Robert Kubica á BMW náði heldur ekki stig og þar með virðast Hamilton og Massa líklegastir til að berjast um titilinn. Þrjú mót eru eftir og 30 stig í pottinum. Hamilton er með sjö stig á Massa og þeir eiga eftir að keppa í Japan, Kína og Brasilíu.

Í fyrra glopraði Hamilton niður 17 stiga forskoti á Raikkönen í tveimur síðustu mótunum og tapaði titlinum með eins stigs mun. En Hamilton hefur trúlega lært af reynslunni og sætti sig við þriðja sætið í mótinu í gær. Sú ákvörðun gæti verið stórt skref í átt að fyrsta titli Hamiltons.

Stigastaðan










Fleiri fréttir

Sjá meira


×