Byrgismálið það langumfangsmesta í sögu Héraðsdóms Suðurlands Andri Ólafsson skrifar 2. maí 2008 13:35
Sjö vikur eru síðan Byrgismálið svokallaða var dómtekið en dómsniðurstaða hefur hins vegar enn ekki fengist. Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari er með málið. Hjörtur Aðalsteinsson, dómstjóri við Héraðsdóm Suðurlands, segir Byrgismálið langumfangsmesta sakamál sem dómurinn hefur fjallað um. Kalla þurfti til aukadómritara til þess að aðstoða við að vélrita alla 18 klukkutímanna af segulbandsupptökum sem til eru eftir skýrslutökur vitna fyrir dómi. Í lögum um meðferð opinberra mála segir að dómur skuli kveðinn upp svo fljótt sem unnt er og að jafnaði ekki síðar en þremur vikum eftir dómtöku. Dómstjóri segir að ítrasti frestur sem Hæstirétur hafi lagt blessun sína yfir sé átta vikur og segist hann búast við niðurstöðu innan þess tíma. Það þýðir að dóms sé að vænta í Byrgismálinu fyrir næsta föstudag. Með Byrgismálinu er átt við ákærur ríkissaksóknara á hendur Guðmundi Jónssyni, fyrrverandi forstöðumanni Byrgisins, en hann er grunaður um kynferðisbrot gagnvart nokkrum skjólstæðingum sínum í Byrginu. Guðmundur neitar sök í málinu.
Mest lesið Setti ofan í við Ingu: „Vert þú ekki með þennan skæting við mig“ Innlent Lokað um Þrengsli og vegir víða á óvissustigi Veður „Þetta er farið að að bera meira keim af einelti en löglegri stjórnsýslu” Innlent Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Erlent Flæddi inn í hús á Arnarnesi Innlent Hvít jól, gular viðvaranir og varasamt ferðaveður Innlent Lyklaskipti í máli og myndum: „Þetta er voldugur lykill“ Innlent Egill Þór er látinn Innlent Nýir ráðherrar ætli að vinna saman og ekki loka sig af Innlent Ný ríkisstjórn fundar í dag Innlent Fleiri fréttir Egill Þór er látinn Nýir ráðherrar ætli að vinna saman og ekki loka sig af Flæddi inn í hús á Arnarnesi Ný ríkisstjórn fundar í dag „Þetta er farið að að bera meira keim af einelti en löglegri stjórnsýslu” Missti stjórn á bílnum og endaði inni í garði Lyklaskipti í máli og myndum: „Þetta er voldugur lykill“ Hvít jól, gular viðvaranir og varasamt ferðaveður Nýr flugvöllur opnar nýjar dyr fyrir Suður-Grænland Tvö tröllvaxin mál og sækja eigi tekjurnar í fiskinn „Heimsins furðulegasti fiskur“ afhentur í fjármálaráðuneytinu Kirkjutröppurnar opnaðar að nýju og hiti í hverju þrepi Setti ofan í við Ingu: „Vert þú ekki með þennan skæting við mig“ Umferðartafir vegna bílveltu á Mýrum Lyklaskipti og afmæli elsta Íslendingsins Segir Helga Magnús óhæfan til að gegna embættinu „Þannig að jólin komu snemma hjá mér“ „Ég fæ ekki séð hvaða rugl þetta er“ Fyrsti læknirinn í heilbrigðisráðuneytinu Það bráðvantar börn á leikskólann á Hvanneyri „Þú veist að ég er sú sem að passar best hérna inn“ „Ein allra besta jólagjöfin“ „Ég veit að þér mun sömuleiðis líða vel hér“ Skortur á sjúkragæslu á viðburðum hafi áhrif á neyðarþjónustu Eftirliti á viðburðum ábótavant og skynsemi í orkumálum Vegir víða hálir á morgun og blint á fjallvegum Stjórnarleiðtogar sitja fyrir svörum á Sprengisandi „Afskaplega róleg“ nótt hjá lögreglumönnum Þakklæti, auðmýkt, rok og söngur ríkisstjórnarinnar „Kurr í greininni í dag um að þetta skuli hvort tveggja vera á matseðlinum“ Sjá meira