Erlent

Varnarmálaráðherra skoðar heiðursvörðinn

Óli Tynes skrifar
Carme Chacon skoðar heiðursvörðinn.
Carme Chacon skoðar heiðursvörðinn.

Carme Chacon sór í dag embættiseið sem varnarmálaráðherra Spánar. Hún er fyrsta konan sem gegnir því hlutverki.

Hún var ein af sautján nýjum ráðherrum sem sóru embættiseið í hinni nýju ríkisstjórn Jose Luis Rodriguez Zapatero, forsætisráðherra.

Nýi varnarmálaráðherrann er 37 ára gömul. Hún er með doktorsgráðu í lögum frá háskólanum í Barcelóna og hefur meðal annars starfað sem prófessor í stjórnlagafræðum.

Hluta af menntun sinni sótti hún til Kanada þar sem hún las meðal annars við lagadeild háskóla bæði í Toronto og Montreal.

Carme Chacon er ógift.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×