Viðskipti erlent

Hækkun á Wall Street í dag

Frá Wall Street kauphöllinni.
Frá Wall Street kauphöllinni. Mynd úr safni
Hlutabréfavísitölur í Bandaríkjunum hækkuðu í dag og er ástæðan einkum rakin til hækkunar á orkufyrirtækjum eftir að ljóst varð að olía væri örlítið að hækka í verði. Einnig er talið að fjárfestar vestan hafs horfi björtum augum á ýmsar björgunaraðgerðir í efnahagslífinu.

Dow Jones hækkaði um 0,83%, Standard & Poor´s hækkaði um 0,75% og Nasdaq hækkaði um 1,16%.

Sé horft á vikuna í heild fell Dow Jones um 5,6%, S&P um 5,9% og Nasdaq

um 3,02%.

Heimild: Reuters.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×