Formúla 1

Gull í Formúlu 1 eða stigagjöf?

Lewis Hamilton fagnar sigri í Formúlu 1, en óljóst er hvort hann eða aðrir sigurvegarar fái gullmedalíu í stað stiga fyrir sigur árið 2009.
Lewis Hamilton fagnar sigri í Formúlu 1, en óljóst er hvort hann eða aðrir sigurvegarar fái gullmedalíu í stað stiga fyrir sigur árið 2009. Mynd: Getty Images

Alþjóðabílasambandið og samtök Formúlu 1 liða virðast ekki geta komið sér saman um hvort stigakerfi eða gullkerfi svokallað verður notað 2009.

FIA gaf út þá yfirlýsingu á þriðjudaginn að gullkerfið yrði tekið í notkun 2009 og sá sem ynni flest gull yrði meistari. Nú er hlaupinn snuðra á þráðinn þar sem FOTA, samtök Formúlu 1 liða mótmælti notkun þess. Sagði FIA, samkvæmt eigin reglum ekki geta breyt mótshaldinu svo skömmu fyrir fyrsta mót. Slíkt þyrfti að ákveða með margra mánaða fyrirvara.

Margir ökumenn mótmæltu líka breytingunni, m.a. Lewis Hanilton, núverandi meistari. FIA hefur boðið að fresta því um eitt ár að taka gullkerfið í notkun, en allt stendur enn opið vegna orðalags FIA í tilkynningu í gær. Í henni segir að FIA sé tilbúið að fresta málum, ef FOTA sé á móti breytingunum.

Bernie Ecclestone, stjórnandi sjónvarpsréttarins vill ólmur nota gullkerfið og nú er spurning hver niðurstaðan verður, en aðeins vika er í fyrsta mót.

sjá nánar um málið










Fleiri fréttir

Sjá meira


×