Lífið

Gaddfreðnir Westlife-liðar í tískufötum uppi á jökli

Á tökustað Westlife-piltarnir gáfu sér lítinn tíma til að skoða hvað Reykjavík hafði upp á að bjóða; tökur á nýju myndbandi þeirra stóðu frá morgni til kvölds.
Á tökustað Westlife-piltarnir gáfu sér lítinn tíma til að skoða hvað Reykjavík hafði upp á að bjóða; tökur á nýju myndbandi þeirra stóðu frá morgni til kvölds.

Strákarnir í Westlife tóku upp myndband á Íslandi í vikunni. Myndbandið verður að líkindum frumsýnt í sjónvarpsþættinum X-Factor sem milljónir horfa á í hverri viku.

„Þeir höfðu engan tíma fyrir neitt annað en tökurnar, þetta var mjög stíf dagskrá hjá þeim,“ segir Rafnar Hermannsson hjá True North. Hann var með Westlife við tökur á nýju myndbandi sveitarinnar við Jökulsárlón og Skálafellsjökul. Fréttablaðið greindi frá væntanlegri för strákabandsins en það er eitt það allra vinsælasta á Bretlandseyjum og þótt víðar væri leitað. Leikstjóri myndbandsins var Phil Adelman en sá hefur unnið með listamönnum á borð við Beyoncé, Lenny Kravitz og Jay-Z.

Rafnar segir fjórmenningana í Westlife hafa komið til landsins á sunnudaginn. Síðan hafi verið unnið sleitulaust frá morgni til kvölds. Leiguvél ferjaði fjórmenningana milli Reykjavíkur og Hafnar í Hornafirði enda má engan tíma missa þegar dagsbirta er af jafn skornum skammti og nú er.

„Við byrjuðum klukkan sex á morgnana og vorum að til níu á kvöldin. Og þegar öllum tökunum var lokið héldu þeir samstundis heim,“ segir Rafnar en Westlife fékk fínt veður meðan á tökunum stóð þótt óneitanlega hafi verið kalt. Drengirnir létu það þó ekki á sig fá og klæddust nýjustu tískufötunum, sem teljast ekki heppilegur klæðnaður þegar menn eru staddir uppi á hálendi Íslands. Þeim varð því nokkuð kalt, svo vægt sé til orða tekið. „Við vorum síðan bara með dúnúlpur til að hlýja þeim inni á milli.“

Þrettán manna hópur fylgdi drengjunum við hvert fótmál og þeim gafst lítið tækifæri til að kíkja á hið margrómaða næturlíf Reykjavíkurborgar, þrátt fyrir að þeir hafi gist í hjarta borgarinnar á 101 hóteli. Rafnar segir að gert sé ráð fyrir því að myndbandið verði frumsýnt annaðhvort um helgina eða í næstu viku í sjónvarpsþættinum X-Factor þar sem skapari sveitarinnar, Simon Cowell, situr við stjórnvölinn. Þættirnir eru meðal þeirra vinsælustu í bresku sjónvarpi og má því fastlega gera ráð fyrir að Ísland og alvöru jöklakulda beri þar talsvert á góma.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.