Fótbolti

Átta stiga forysta hjá Inter

Luis Figo skoraði fyrir Inter
Luis Figo skoraði fyrir Inter NordicPhotos/GettyImages
Internazionale náði í gærkvöldi 8 stiga forystu á erkifjendur sína í AC Milan í ítölsku A-deildinni í knattspyrnu.

Inter vann Lecce 3-0 á sama tíma og AC Milan varð að láta sér duga 1-1 jafntefli á heimavelli gegn Reggina.

Zlatan Ibrahimovic, Luis Figo og Dejan Stankovic skoruðu í 3-0 sigri Inter. Brasilíumaðurinn Kaka jafnaði fyrir AC Milan gegn Reggina.

Emil Hallfreðsson var á varamannabekk Reggina og kom ekki inná í leiknum




Fleiri fréttir

Sjá meira


×