Innlent

Eyþór með meiri stuðning en Árni Matt

Eyþór Arnalds
Eyþór Arnalds

Stuðningsmenn Eyþórs Arnalds létu í vikunni Capacent Gallup framkvæma skoðanakönnun á meðal kjósenda í Suðurkjördæmi. Í könnunni kemur fram mjög eindreginn stuðningur við Eyþór á meðal íbúa kjördæmisins.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá stuðningsmönnum Eyþórs í dag. Þar segir að kjósendur kjördæmisins hafi verið spurðir hvort þeir myndu velja Árna M. Mathiesen eða Eyþór Arnalds í fyrsta sætið. Eyþór hlaut stuðning 63.9% aðspurðra en Árni aðeins 36.1%.

Í yfirlýsingu frá stuðningsmannahópnum segir að "í ljósi þessa afgerandi stuðnings hvetja stuðningsmenn Eyþórs Arnalds hann eindregið til þess að gefa kost á sér í fyrsta sætið og leiða Sjálfstæðismenn í kjölfarið til sigurs í kjördæminu."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×