Auglýsingamyndin fyrir Tuborgs Julebryg, eða jólaölið frá Tuborg bruggverksmiðjunum, þar sem að jólasveinninn hittir ölbíl frá Tuborg er án efa langlífasta auglýsing Danmerkur en hún hefur verið tekin til sýninga á hverju ári undanfarin 25 ár. Fyrir fjölmarga Dani markar hún upphafið að jólaönnunum.
Í frásögn um auglýsinguna á börsen.dk segir að hún sé hugarsmíð Peter Wibroe sem hafði þann starfa fyrir aldarfjórðungi að teikna jólakort fyrir Tuborg. Árið 1981 var síðan jólaölið sett á markaðinn, oft kallað Sneöl eða Snæöl sökum þess að hálsinn á flöskunum er pakkaður í hvítan pappír. Átti Wibroe heiðurinn af umbúðunum á flöskunum sem og auglýsingunni sem fylgdi Snæölinu úr hlaði.
Það var svo Thomas Tingstrup sem átti hugmyndina að J-deginum en hann vann sem framleiðslustjóri hjá Tuborg á þessum tíma. Honum hafði verið boðið í smökkun á Beaujolais Nouveau rauðvínsárganginum sem haldin er árlega í Danmörku 2. nóvember hvert ár. Tingstrup hugsaði með sér, afhverju að bjóða ekki upp á jólaölssmökkun.
Árið 1990 var svo fyrsti J-dagurinn haldinn og Snæölið keyrt út á 100 krár í Kaupmannahöfn þann 1. nóvember það ár.
Þetta var upphafið að einhverri best heppnuðu auglýsingaherferð í sögu Danmerkur. Þegar fyrsti J-dagurinn var haldinn var markaðshlutdeild Snæölsins frá Tuborg fremur lítil, m.a. langt undir X-mas ölinu en Snæölið er nú það langvinsælasta á danska jólaölsmarkaðinum.
Fyrsta J-daginn tókst að fá ökumennina á ölbílum Tuborg til þess að keyra ölið út skömmu fyrir miðnættið og var það keyrt á 100 krár í Kaupmannahöfn. Næsta J-dag árið eftir voru krárnar orðnar 1.000 talsins og nú eru allar krár landsins með í leiknum en venjan er að fastakúnnar þeirra fái fyrstu Snæölin frítt að drekka.
J-dagurinn varð svo vinsæll meðal Dana að færa varð hann til síðasta föstudagsins fyrir 1. nóvember. Ástæðan var sú að svo margir urðu forfallaðir í vinnu og skólum landsins ef J-daginn bar upp á virkan dag í miðri viku.
Sum sé í kvöld renna ölbílarnir frá Tuborg í hlað hjá öllum krám Danmerkur og kúnnar þeirra fá að smakka á Snæölsárganginum í ár. Skál.