Innlent

Skrifaði bók um föður framsalsbeiðanda

Hosmany Ramos.
Hosmany Ramos.

Dómsmálaráðuneytið hefur farið fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir Hosmany Ramos sem hefur verið hér á landi síðan í haust. Lögmaður Hosmanys, Hilmar Ingimundarson, hefur andmælt því fyrir hönd skjólstæðings síns.

Meðal annars vegna þess að Hosmany segist hafa skrifað bók um föður Romeo Tuma junior, sem hefur lagt fram framsalsbeiðnina fyrir hönd dómsmálaráðuneytisins. Faðir hans, sem einnig heitir Romeo Tuma, var lögreglustjóri í Sao Paolo. Í bók Hosmanys sakaði hann Tuma um spillingu og mútuþægni í starfi.

Framsalsbeiðnin er enn til skoðunar hjá dómsmálaráðuneytinu sem og útlendingastofnun. Hosmany hefur verið í gæsluvarðhaldi allan tímann sem það ferli hefur staðið yfir. Enginn framsalssamningur er á milli landanna.

Aðspurður segist Hilmar fá mikið af hringingum frá blaðamönnum í Sao Paolo þar sem mikill áhugi virðist vera á málum Hosmanys. Hann var einn frægasti fanginn þar í landi og hefur meðal annars skrifað fjölda bóka gagnrýnir hann oft fangelsiskerfið í Brasilíu. Hann er menntaður lýtalæknir en var dæmdur árið 1981 í 21 árs fangelsi fyrir flugvélaþjófnað, bifreiðasmygl og morð.

Nokkrum árum síðar strauk hann úr fangelsinu og fékk fyrir vikið enn þyngri dóm. Í desember á síðasta ári fékk Ramos leyfi frá fangelsisvistinni með því skilyrði að hann snéri aftur í byrjun janúar. Hann sást hins vegar ekki aftur fyrr en hann dúkkaði upp í Leifsstöð nú fyrir helgi með falskt vegabréf og var þá handtekinn á stundinni.

Hosmany ólst upp í fátækrahverfum í Brasilíu. Afi hans var meðal annars þekktur fyrir að hafa myrt heila fjölskyldu. Þá á faðir hans að hafa myrt meintann ástmann móður Hosmanys. Sjálfur braust Hosmany úr hlekkjum fátæktar og nam lýtalækningar. Hann vingaðist við fræga og fína fólkið í Brasilíu. Fólk vissi hinsvegar ekki að á sama tíma sendi hann gengi til þess að ræna húsin þeirra.

Gæsluvarðhaldið rennur út klukkan fjögur í dag en fastlega má búast við því að það fáist. Þeim dómi verður áfrýjað til Hæstaréttar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×