Sport

Kotelnik: Ég mun refsa Khan illilega fyrir hrokann

Ómar Þorgeirsson skrifar
Andreas Kotelnik.
Andreas Kotelnik. Nordic photos/AFP

Úkraínumaðurinn Andreas Kotelnik er allt annað en sáttur með Bretann unga Amir Khan fyrir bardaga þeirra 18. júlí næstkomandi.

Khan hefur látið stór orð falla um að hann ætli sér að verða besti breski hnefaleikamaðurinn og sé tilbúinn í bardaga á móti Ricky Hatton, Juan Manuel Marquez og Erik Morales þegar hann sé búinn með Kotelnik.

Kotelnik, sem er handhafi WBA létt-veltivigtarbeltisins, er í vígahug og ætlar að láta Khan finna fyrir því í hringnum.

„Khan er óvenju hrokafullur miðað við hnefaleikamann sem hefur ekki einu sinni barist um belti ennþá og ég ætla að refsa honum illilega þegar við mætumst í hringnum. Ef hann heldur virkilega að hann geti bara mætt 18. júlí og ég muni afhenda honum beltið þá skjátlast honum hrapalega. Hann ætti að einbeita sér að bardaganum á móti mér í stað þess að tala um að berjast við Hatton, Marquez eða King Kong eftir bardagann við mig. Annars fer mjög illa fyrir honum," segir Kotelnik ákveðinn.





Box



Fleiri fréttir

Sjá meira


×