Viðskipti erlent

Tilsjónarmenn skipaðir með Mosaic Fashions

Tilsjónarmenn hafa verið skipaðir með Mosaic Fashions meðan á greiðslustöðvun félagsins stendur.

Í tilkynningu um málið segir að þetta séu þeir Neville Kahn, Lee Manning and Philip Bowers frá endurskoðendafyrirtækinu Deloitte. Munu þeir hefja störf strax í dag.

Fram kemur í tilkynningunni að Kaupþing, helsti lánadrottinn Mosaic, hafi átt í viðræðum við stjórn félagsins um endurfjármögnun félagsins en að þær viðræður hafi ekki skilað árangri. Því hafi stjórn félagsins ákveðið að hún gæti ekki haldið rekstrinum áfram.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×