Forstjóri Magasin mjög ánægður með kaup Debenhams 12. nóvember 2009 10:02
Jón Björnsson forstjóri Magasin du Nord er mjög ánægður með kaup bresku verslunarkeðjunnar Debenhams á dönsku stórversluninni. „Það er óskastaða fyrir Magasin að vera nú komið í eigu verslunarmanna," segir Jón í samtali við börsen.dk.„Debenhams er einhver best rekna verslunarkeðja Evrópu með mikla þekkingu innanbúðar," segir Jón og bætir því við að sökum stærðar sinnar geti Debenhams fengið hagstæðari kjör á innkaupum sínum og að slíkt komi Magasin til góða.Jón Björnsson bætir því við að þar fyrir utan sé Debenhams með mikið af eigin vörumerkjum og að slíkt muni styrkja vöruúrval Magasin og styðja við þeirra eigin norrænu og alþjóðlegu vörumerki.Þá kemur fram í máli Jóns að Magasin sé sterkt vörumerki á danska markaðinum og að nú hafi verslunin traustan grunn til að byggja á í framtíðinni. „Við munum verða enn sterkari í framtíðinni," segir Jón.
Mest lesið Sýkna í vaxtamálinu: „Þetta eru gífurleg vonbrigði“ Neytendur „Þetta verður bara heiðarlegur bisness, ég nenni engu kjaftæði“ Viðskipti innlent Fáránlegt að eiga ekki „smá Bitcoin“ á Íslandi Viðskipti innlent Ísold ráðin markaðsstjóri Viðskipti innlent Horfur tveggja banka úr stöðugum í jákvæðar Viðskipti innlent Ólafur Ingi: „Ég er kostuð eiginkona“ Atvinnulíf Frá Bændasamtökunum til Samorku Viðskipti innlent Að byggja upp vinnustað sem hræðist ekki breytingar Atvinnulíf Megi troða „singles day“ upp í greiðslugáttirnar á sér Neytendur Einróma niðurstaða að Hörður sé eins og Kristján í Frozen Atvinnulíf Fleiri fréttir Linkedin sektað um tugi milljarða Samkeppni eykst í Grænlandsflugi Sekta Google um meira en allan pening heimsins Adidas og Ye sættast Bjóða upp á veðmál um leiki barna og styrkja knattspyrnurisa Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? United Airlines hefur flug milli New York og Nuuk Viðskiptavinir gjaldþrota rafmyntakauphallar endurheimta milljarða Samþykktu allt að 45 prósent toll á kínverska rafbíla Samið um lok umfangsmikils verkfalls hafnarverkamanna Sjá meira