Viðskipti erlent

Circuit City lokar hátt í 600 verslunum

Jón Hákon Halldórsson skrifar

Raftækjaverslunarkeðjan Circuit City tilkynnti í gær að verslunin myndi loka 567 verslunum í Bandaríkjunum með þeim afleiðingum að 34 þúsund störf munu tapast. Áður höfðu eigendur fyrirtækisins gert árangurslausa tilraun til að selja það.

Lokun verslananna lýsir vel þeim miklu vandræðum sem verslunarmiðstöðvar víða í Bandaríkjunum eru komnar í. Ástæðan er rakin til mikils falls í einkaneyslu. „Þetta er mjög sorglegt," sagði Alan L. Wurtzel, sonur Samuels Wurtzel sem stofnaði Circuit City. „Ég er alveg sérstaklega hryggur vegna starfsmanna, eða fráfarandi starfsmanna," bætir hann við.

Stjórnendur Circuit City hafa verið að leita að aðila til að fjárfesta í félaginu til þess að geta endurfjármagnað það. En neytendur halda að sér höndum og hið sama er að segja um þá sem eiga lánsfjármagn. Það hefur komið í veg fyrir að tilboð fáist í fyrirtækið.

Bloomberg fréttastofan sagði frá.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×