Viðskipti erlent

Er kreppunni að ljúka í Bandaríkjunum?

Hagfræðingar telja að hagkerfi Bandaríkjanna sé að rétta úr kútnum.
Hagfræðingar telja að hagkerfi Bandaríkjanna sé að rétta úr kútnum.
Talið er að bandaríska hagkerfið muni rétta úr kútnum á seinni hluta þessa árs, það er mun fyrr en hagfræðingar höfðu áður gert ráð fyrir. Þetta kemur fram í nýrri könnun á vegum Bloomberg fréttaveitunnar. Ástæðan er meðal annars aukin einkaneysla.

Samkvæmt könnuninni sjást stöðugleikamerki á húsnæðismarkaði, aukin bjartsýni neytenda og minni samdráttur í bílasölu en verið hefur. Hins vegar mun atvinnuleysi væntanlega aukast lítillega á næstunni og mun það draga úr efnahagsbatanum.

„Stöðugleiki er að nást í efnahagslífinu, það eru margir jákvæðir hlutir að gerast. Þeir gerast ekki nógu hratt til að gera alla ánægða en við erum á réttri leið," segir aðalhagfræðingur verðbréfasviðs Royal Bank of Scotland.

Samkvæmt könnuninni er talið er að Seðlabanki Bandaríkjanna komi til með að hækka vexti á þriðja ársfjórðungi næsta árs og fari með vextina í 1 prósent. Fyrir einungis mánuði síðan töldu hagfræðingar að Seðlabanki Bandaríkjanna myndi halda stýrivöxtum nálægt 0 prósentum fram til fjórða ársfjórðungs 2010.

Nú eru stýrivextir í Bandaríkjunum á bilinu 0-0,25%.

Fram kemur í könnuninni að hagkerfið í heild sinni hafi væntanlega dregist saman um 1,8% á tímabilinu apríl til júní, sem er minni samdráttur en hagfræðingar höfðu áætlað. Talið er að bandaríska hagkerfið mun skila hagvexti á þessum ársfjórðungi og er áætlaður hagvöxtur næsta árs 2,1%.

Þátttakendur í könnuninni hækkuðu einnig spár sínar um einkaneyslu en einkaneysla nemur um 70% af hagvexti Bandaríkjanna.

Ennfremur kemur fram að niðursveiflunni muni væntanlega ljúka fljótlega, þrátt fyrir það mun atvinnuleysi aukast lítið eitt á næstu mánuðum. Talið er að atvinnuleysi muni verða 10,1% á fyrsta ársfjórðungi 2010 en í síðasta mánuði var atvinnuleysi í Bandaríkjunum 9,5%.

Tæplega sjö milljónir manna hafa misst atvinnu sína í Bandaríkjunum síðan kreppan hófst þar í landi í desember 2007, sem er mesta uppsagnarhrina þar í landi síðan í seinni heimsstyrjöldinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×