Viðskipti erlent

Nær öllum sagt upp á skrifstofu Baugs í London

Nær öllum starfsmönnum á skrifstofu Baugs í London verður sagt upp í dag. Aðeins Jón Ásgeir Jóhannesson stjórnarformaður, Gunnar Sigurðsson forstjóri og Andrew Lobb forstöðumaður lagadeildar félagsins munu starfa þar áfram.

Þetta kemur fram í breska blaðinu Independent sem hefur eftir heimildarmönnum að PricewaterhouseCoopers, sem tekið er við stjórn félagsins, muni tilkynna starfsmönnum þetta nú eftir hádegið.

Blaðinu tókst ekki að ná tali af PricewaterhouseCoopers til að fá þetta staðfest.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×