Formúla 1

Renault hótar að hætta

Fernando Alonso ekur Renault, sem sér einnig Red Bull fyrir vélum.
Fernando Alonso ekur Renault, sem sér einnig Red Bull fyrir vélum.

Renault hefur bæst í hóp Formúlu 1 liða sem hóta að keppa í Formúlu 1, ef nýjar reglur FIA ná fram að ganga fyrir næsta ár. Ferrari, Red Bull, Torro Rosso og Renault hafa öll formlega sagt að þau dragi sig úr keppni í lok ársins hefur FIA nær sínu fram.

Þá eru BMW og Toyota ósátt við framgang mála, en hafa ekki sent frá sér formlega yfirlýsingu í málinu, eins og Renault gerði í dag og Ferrari í gær. Renault er með eigið keppnislið auk þess að sjá Red Bull fyrir vélum í bíla liðsins á þessu ári.

Ljóst er að FIA er komið upp að vegg í málinu, en Max Mosley svaraði Ferrari digurbarkalega í síðustu viku og sagði að Formúla 1 gæti vel verið án Ferrari. Forseti Ferrari er forseti samtaka Formúlu 1 liða og talið er að hann hitti Mosley að máli á næstu dögum.

Bernie Ecclestone er ósáttur við úlfaþytinn sem hefur skapast á milli FIA og keppnisliða og rær að því öllum árum að aðilar sættist á málamiðlun. FIA vill minnka kostnað sem allir eru sammála um, en upphæðina eru menn ekki sáttir við sem sett hefur verið fram, né heldur að mismunandi reglur verði í gangi eftir því hvaða fjármuni lið gangast undir að verja í íþróttina.

Sjá yfirlýsingu Renault










Fleiri fréttir

Sjá meira


×