NBA í nótt: Loks vann Lakers í Detroit Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 27. mars 2009 09:00 Kobe Bryant í leiknum í nótt. Nordic Photos / Getty Images
LA Lakers batt enda á níu leikja taphrinu liðsins á heimavelli Detroit er Lakers unnu þar fimmtán stiga sigur í NBA-deildinni í körfubolta í nótt, 92-77. Kobe Bryant skoraði 30 stig fyrir Lakers sem tók forystuna í þriðja leikhluta og var sigurinn ekki í hættu eftir það. Lakers vann síðast í Detroit þann 8. janúar 2002 en þessi lið mættust í úrslitum NBA-deildarinnar árið 2004 þar sem Detroit fór með sigur af hólmi. Þetta var fjórði sigur Lakers í röð en liðið er með næstbesta árangurinn í NBA-deildinni og er einum sigurleik á eftir Cleveland. Detroit hins vegar hefur ekki átt jafn góðu gengi að fagna á tímabilinu. Sem stendur er liðið í áttunda sæti Austurdeildarinnar og því á leið í úrslitakeppnina eins og staðan er nú. Þeir Allen Iverson, Richard Hamilton og Rasheed Wallace voru allir fjarverandi vegna meiðsla í gær. Will Bynum var stigahæstur hjá Detroit með 25 stig og ellefu stoðsendingar. Chicago vann Miami, 106-87. John Salmons skoeraði 27 stig fyrir Chicago sem vann sinn sjötta sigur af síðustu sjö leikjum sínum. Portland vann Phoenix, 129-109. LaMarcus Aldridge skoraði 29 stig og tók tólf fráköst er Portland batt enda á sex leikja sigurgöngu Phoenix. Staðan í deildinni.
NBA Mest lesið Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Íslenski boltinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Enski boltinn Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Fótbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Enski boltinn Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira