Viðskipti erlent

Bagger í sjö ára fangelsi

Stein Bagger
Stein Bagger

Danski fjárglæframaðurinn Stein Bagger var í gær dæmdur í sjö ára fangelsi fyrir að hafa dregið til sín jafnvirði nærri þrjátíu milljarða íslenskra króna þegar hann var stjórnandi upplýsingatæknifyrirtækisins IT Factory.

Bagger flúði frá Danmörku þegar upp komst um brotin. Hans var leitað víða um heim og hann eftirlýstur af alþjóðalögreglunni Interpol.

Bagger gaf sig fram við lögregluna í Los Angeles í desember síðasliðnum og hann þá framseldur til Danmörku.




Tengdar fréttir

Lífvörður Baggers skotinn

Lífvörður fjársvikamannsins Steins Bagger, Hells Angels liðinn Brian Sandberg, var skotinn skömmu eftir eitt í dag. Hann fékk tvö skot í bakið þar sem hann sat á kaffihúsi. Að sögn danska blaðsins Extrabladet er ekki vitað um líðan hans.

Bagger kominn heim og í gæsluvarðhald

Danski fjársvikamaðurinn Stein Bagger er kominn heim til Kaupmannahafnar og var í gær úrskurðaður í gæsluvarðhald fram yfir áramót en Bagger gaf sig fram við lögreglu í Los Angeles fyrir tíu dögum.

Bagger sagður krónískur lygari

Danska lögreglan trúir ekki framburði fjársvikamannsins Stein Baggers. Hann er sagður krónískur lygari og segir aðstoðarsaksóknari allt eins líklegt að Bagger hafi grafið hluta af þýfinu í eyðimörkinni í Nevada meðan hann var á flótta í Bandaríkjunum.

Lífvörður Baggers tekinn með kókaín

Daninn Brian Sandberg, sem er hvað þekktastur fyrir að vera lífvörður fjárglæframannsins Stein Bagger og félagi í vélhjólasamtökunum Vítisenglum, var handtekinn af lögreglu í Kaupmannahöfn í gær með kókaín í fórum sínum. Magn efnisins reyndist vera minni háttar og var Sandberg sleppt úr haldi að lokinni skýrslutöku.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×