Formúla 1

FIA og Formúlu 1 lið funda á föstudag

Samtök Formúlu 1 liða munu hitta FIA að máli á morgun.
Samtök Formúlu 1 liða munu hitta FIA að máli á morgun. m

Deilurnar á milli Formúlu 1 liða og FIA, alþjóðabílasambandsins verða ræddar á fundi málsaðila á föstudag. Fjögur Formúlu 1 lið hafa hótað að hætta í Formúlu 1 í lok ársins ef reglur varðandi rekstrarkostnað taka gildi fyrir 2010.

Forseti Formúlu 1 liðs Toyota segir að vissulega séu yfirlýsingar Ferrari, Torro Rosso, Renault og Red Bull slæmar fréttir.

„Mönnum er mikið niðri fyrir, en málið snýst um að Formúlu 1 lið vilja bara stöðugleika í Formúlu 1, ekki hringl með reglur. Toyota vill vera áfram í Formúlu 1 og sama má segja um önnur lið, en menn verða að vinna saman", sagði john Howett.

Bernie Ecclestone hefur reynt að miðla málum síðustu daga, enda telur hann óhugsandi að Ferrari hætti í Formúlu 1, eins og liðið hótaði í vikunni ásamt Renault.

Samtök Formúlu 1 liða munu hitta forráðamenn FIA á fundi og ræða málin, en óvíst er hvort deilurnar verða til lykta leiddar. Formúlu 1 lið eru ósátt við þak sem FIA vill setja á rekstrarkostnað og það að tvær útgáfur reglna verði jafnvel í gangi.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×