Viðskipti erlent

Spánn er að rétta úr kútnum

Óli Tynes skrifar
Jose Luis Rodriguez Zapatero, forsætisráðherra Spánar.
Jose Luis Rodriguez Zapatero, forsætisráðherra Spánar.

Versta lægð kreppunnar er gengin yfir á Spáni að sögn Zapateros, forsætisráðherra.

Í viðtali í dagblaðinu El Pais segir Zapatero að það versta sé afstaðið og að hagkerfið muni byrja að vaxa aftur á fyrsta eða öðrum ársfjórðungi næsta árs.

Forsætisráðherrann er þarna nokkuð bjartsýnni en aðrir sem hafa fjallað um efnahagshorfur Spánar undanfarna daga.

Seðlabanki landsins hefur þannig sagt að hann sjái ekki fram á hagvöxt fyrr en í lok næsta árs. En bjartsýnin hefur aldrei drepið neinn.


















Fleiri fréttir

Sjá meira


×