Handbolti

Hlynur Morthens: Grátlegt að tapa þessu

Rafnar Orri Gunnarsson skrifar
Afmælisbarnið og Kópavogsbúinn Hlynur Morthens.
Afmælisbarnið og Kópavogsbúinn Hlynur Morthens.

Afmælisbarnið, Hlynur Morthens, markvörður Vals, var ekki sáttur eftir tap gegn FH, 20-23 sem fram fór í Vodafonehöllinni í dag. Þetta var fyrsti tapleikur þeirra á heimavelli í vetur.

„Fyrsti tapleikurinn okkar á heimavelli og við ætluðum okkur ekki að tapa leik hérna en þetta gekk ekki í dag. Hrikalega grátlegt að tapa þessu," sagði Hlynur svekktur.

Það vantaði mikið í sóknarleikinn hjá Val en vörnin og markvarslan var góð allan leikinn. Hlynur átti frábæran dag í markinu og varði sautján skot.

„Vörnin var fín og ég var að finna mig vel fyrir aftan. Sóknin er bara vandamál hjá okkur og ég veit ekki hvað er það sem er að þar," sagði Hlynur að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×