Viðskipti erlent

Dönsk stjórnvöld kanna málssókn gegn eigin fjármálaeftirliti

Ríkisstjórn Danmerkur er nú að kanna hvort hægt sé að hefja málsókn (tjenestemandssag) gegn stjórn danska fjármálaeftirlitsins. Ástæðan fyrir málsókinni er ábótavant eftirlit hins danska FME með Roskilde Bank sem varð gjaldþrota fyrr í ár.

Í dönskum fjölmiðlum þessa stundina er sagt að Lene Espersen efnahags- og viðskiptaráðherra Danmerkur muni mæla með að lögfræðingar hefji undirbúning málsóknarinnar á næstunni. Þetta hafi verið niðurstaða á lokuðum fundi ráðherra með fjármálanefnd danska þingsins í síðasta mánuði.

Í fundargerð frá fyrrgreindum fundi sem nú hefur verið gerð opinber í Danmörku segir m.a. að þótt störf fjármálaeftirlitsins séu traust og fagleg er samt um að ræða alvarleg atriði í störfunum sem þarfnast nánari skoðunnar. Einnig hvort þau atriði eigi að hafa eftirköst.

Lene Espersen bendir sjálf á að Ríkisendurskoðandi Danmerkur hafi gagnrýnt fjármálaeftirlitið fyrir að hafa ekki fylgt nægilega eftir eigin ábendingum um áhættuna í rekstri Roskilde Bank á árinum 2004 til 2008.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×