Engin hætta er á því enn sem komið er að forystuliðin í Formúlu 1 mótinu beiti liðsskipunum til að ráða því hvaða ökumaður eigi meiri sjéns í titilinn. Jenson Button og Rubens Barrichello hjá Brawn og Sebastian Vettel og Mark Webber hjá Red Bull er frjálst að keppa af fullri hörku gegn hvor öðrum.
Vettel verður á heimavelli um næstu helgi á Nurburgring og hefur unnið tvö mót á áriniu og félagi hans Webber ekkert. Webber er þó aðeins 3.5 stigum á eftir Vettel, sem er í þriðja sæti í stigamótinu, á eftir Button og Barrichello.
"Það er alltof snemmt að fara beita liðsskipunum, en hlutirnir hafa fallið betur með Vettel til þessa. Ég þarf að komast ofar á lista í tímatökum og vera þolgóður í mótunum, þá tel ég að sigur sé innan seilingar hjá mér", sagði Webber sem hefur staðið dálítið í skugganum af Vettel.
"Það munar aðeins nokkrum stigum á mér og Vettel og ég á því ágæta möguleika á góðum úrslitum á þessu keppnistímabili. Ég er því rólegur og mun berjast af krafti. Slagurinn um titilinn er erfiður, því Button byrjaði geysilega vel og ég hef ekki trú á að hann klúðri málum mikið í þeim mótum sem eftir eru. Hann gerir bara ekki mistök."
"Það er okkar Vettel að sækja á hann. Ég tel að hann geti bara tapað ef lið hans gerir einhver mistök. Ég gefst þó ekki upp fyrr en í fulla hnefanna, sama hvað keppinautur á í hlut", sagði Webber.
Formúla 1