Heimsmeistarinn Lewis Hamilton segir að þungu fargi sé af sér llétt eftir sigurinn í Singapúr á sunnudaginn. Hann féll úr leik í tveimur mótum sem voru á undan og er ekki inn í myndinni í titilslagnum þetta árið.
Þá var Hamilton fremstur á ráslínu í Valencia, Monza og Singapúr og hefur sigrað tvö mót upp á síðkastið.
"Ég var heimsmeistari í fyrra og nærri því að verða meistari árið áður. Þetta ár hefur því verið mér þungt í skauti, því ég veit að ég get verið meðal þeirra bestu", sagði Hamilton.
McLaren bíll hans var ekki upp á marga fiska í upphafi tímabilsins og Hamilton missti af lestinni.
"Ég held ég sé búinn að sýna að ég átti titilinn skilinn í fyrra, en fólk er fljótt að dæma mann þegar illa gengur. Það er mjög jákvætt að geta sannað þetta fyrir sjálfum sér og öðrum, eftir slakt gengi í upphafi tímabilsins", sagði Hamilton.
Hann keppir á Suzuka brautinni í Japan um næstu helgi, en hefur aldrei keppt á henni.
"Ég hlakka mjög til að takast á við þessa braut, sem er í uppáhaldi hjá flestum ökumönnum. Ég sá hana oft í sjónvarpi í gamla daga og margir þekktir kappar hafa rómað hana. Það verður skemmtilegt verkefni að læra á nýja braut."