Innlent

Umsagnaraðilum stillt upp við vegg

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Björn Bjarnason segir að umsagnaraðilum um stjórnskipunarfrumvarpið sé stillt upp við vegg með naumum tíma.
Björn Bjarnason segir að umsagnaraðilum um stjórnskipunarfrumvarpið sé stillt upp við vegg með naumum tíma.

Umsagnaraðilum um frumvarp um breytingar á stjórnskipunarlögum var stillt upp við vegg vegna tímaskorts, að sögn Björns Bjarnasonar þingmanns Sjálfstæðisflokksins.

Önnur umræða um stjórnskipunarfrumvarpið hófst eftir hádegi og má búast við að hún standi langt fram á kvöld. Björn Bjarnason benti á í ræðu sinni að fjölmargir aðilar sem hefðu verið beðnir um að gefa umsögn um frumvarpið hefðu varla treyst sér til þess vegna tímaskorts.

Nefndi Björn meðal annars Reykjavíkurakademíuna og Ágúst Þór Árnason kennara við Háskólann á Akureyri sem dæmi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×