Kalla eftir upplýsingum frá AGS um meinta leynifundi 8. maí 2009 18:52
Íslensk stjórnvöld ætla að óska eftir upplýsingum frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum um hvort sjóðurinn standi í leyniviðræðum við Breta um Icesave deiluna. Fulltrúi sjóðsins hér á landi vísar þessu á bug. Gordon Brown, forsætisráðherra, Bretlands fullyrti í fyrirspurnatíma í breska þinginu á miðvikudaginn að Íslensk stjórnvöld bæru ábyrgð á innistæðum í útibúi Kaupþings í Bretlandi. Bætti hann við að bresk stjórnvöld væru í viðræðum við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um hversu hratt Íslendingar geta greitt sínar skuldir. Íslensk stjórnvöld hafa mótmælt þessum fullyrðingum enda voru útibúi Kaupþings á ábyrgð breskra stjórnvalda. Þá koma fullyrðingar Gordons Brown um viðræður við Alþjóðgjaldeyrissjóðinn á óvart enda íslenskum stjórnvöldum ekki kunnugt um slíkar viðræður. Málið var tekið fyrir á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun og í dag kallaði utanríkisráðherra fulltrúa breska sendirráðsins á sinn fund. „Ég mótmælti með hreinskiptum hætti þessum yfirlýsingum Brown. Gat þess einnig að þetta væri ekki í fyrsta skiptið sem Brown tæki með þessum hætti til orða um Íslendinga," sagði Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, eftir fundinn með fulltrúa breska sendiráðsins. Fulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á Íslandi vísaði því á bug í samtali við fréttastofu að Bretar og aðrir eigi í viðræðum við sjóðinn um skuldir íslendinga. Ríkisstjórnin hyggst þó kanna fullyrðingar breska forsætisráðherrans. „Ríkisstjórn Íslands mun ganga eftir því að það komi tvímælalaus yfirlýsing frá AGS hvort það sé ekki alveg öruggt að slíkar viðræður hafi ekki átt sér stað," segir Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra. Bretar og Hollendingar beittu þrýstingi innan Alþjóðagjaldeyrissjóðsins síðasta haust til að neyða íslendinga að samningaborðinu vegna Icesave málsins. Formaður framsóknarflokks telur einboðið að Bretar séu að leika sama leikinn á ný.
Mest lesið Átta ár fyrir að bana Bryndísi Klöru Innlent Hætta framleiðslu innanhúss og segja upp fólki Innlent Ellefu slasaðir og þrír alvarlega í Kaupmannahöfn Erlent Segir Jon Øigarden Ingvar E þeirra Norðmanna Innlent Ofsakláði grípur Spaugstofumenn Innlent Málið áfall fyrir embættið Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rússar ítreka umfangsmiklar kröfur og Trump hótar að fara í fússi Erlent Ráðherra vill að leigubílsstjórar tali íslensku Innlent Jafnréttisstofa kallar eftir svörum frá Ingu vegna skipunar í stjórn HMS Innlent Fjölmiðlanefnd tekur fyrir umfjöllun Fréttarinnar Innlent Fleiri fréttir Frekari breytingar í Valhöll Ofsakláði grípur Spaugstofumenn Lítur málið mjög alvarlegum augum Átta ár fyrir að bana Bryndísi Klöru Hætta framleiðslu innanhúss og segja upp fólki Kristófer Breki nýr formaður Vöku Skýrsla starfshóps um lagaumgjörð hvalveiða tilbúin Gætu þurft að endurskoða aukastörf lögreglumanna Mjöll Snæsdóttir er látin Jafnréttisstofa kallar eftir svörum frá Ingu vegna skipunar í stjórn HMS Grunar að fleiri lögreglumenn hafi verið viðriðnir njósnirnar Segir Jon Øigarden Ingvar E þeirra Norðmanna Jafnréttisstofa krefur Ingu Sæland um útskýringu á vali á stjórnarmönnum „Það er ekkert til sem heitir að heita trúnaði um fundarbeiðni“ Fjölmiðlanefnd tekur fyrir umfjöllun Fréttarinnar Ráðherra vill að leigubílsstjórar tali íslensku Mál Ásthildar Lóu krufið fyrir opnum tjöldum Vill að þingflokkar vinni saman að því að stytta frí þingmanna Mikilvægt að vita hvar og hvernig réttar upplýsingar fást í krísuástandi Málið áfall fyrir embættið Skiptar skoðanir á stöðvarskyldu: „Held að enginn vilji hverfa aftur í það ástand“ „Miklu svakalegra en ég gerði mér grein fyrir“ Njósnaaðgerðir sagðar tengjast deilum tveggja af auðugustu mönnum landsins Boðar brottfararstöð fyrir hælisleitendur Óttaðist hið versta þegar allar tengingar rofnuðu Furðar sig á umdeildri Exit-auglýsingu og hækkar veiðigjöldin Selfyssingar buðu lægst í brúasmíði á Vestfjörðum Hræðilegt að missa samskipti við umheiminn og veiðigjöldin Varðstjóri leystur undan vinnuskyldu vegna gruns um njósnir Vesturbæingar búa sig undir fjögurra vikna sundlaugarlokun Sjá meira
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rússar ítreka umfangsmiklar kröfur og Trump hótar að fara í fússi Erlent
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rússar ítreka umfangsmiklar kröfur og Trump hótar að fara í fússi Erlent