Fótbolti

Edda fær ekki hornspyrnumarkið skráð á sig

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Edda Garðarsdóttir er markahæst hjá Örebro.
Edda Garðarsdóttir er markahæst hjá Örebro. Mynd/Heimasíða sænska sambandsins.

Markið sem Edda Garðarsdóttir „skoraði" fyrir KIF Örebro DFF beint úr hornspyrnu á móti Hammarby IF DFF á dögunum verður skráð sem sjálfsmark.

Edda tók þá hornspyrnu sem hafði viðkomu í einum varnarmanni Hammarby en sænska knattspyrnusambandið metur sem svo að um sjálfsmark hafi verið að ræða.

Edda hefur samt sem áður skorað tvö mörk fyrir Örebro í fyrstu fimm umferðunum og er markahæsti leikmaður liðsins. Edda hefur skorað bæði mörkin með langskotum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×