Algjörlega ómeðvitaður um Baugsstyrk Björgvins 24. apríl 2009 12:09 Sigurður G. Guðjónsson. MYNd/Pjetur
Sigurður G. Guðjónsson, lögmaður, segist þurfa að sannreyna hvort Baugur hafi styrkt Björgvin G. Sigurðsson í prófkjörsbaráttu hans fyrir síðustu kosningar til Alþingis. DV greindi frá því á miðvikudaginn að Björgvin hafi fengið 300 þúsund krónur frá félaginu en Sigurður G. Guðjónsson bar það til baka síðar um daginn. Í dag birti DV hins vegar frétt um það að sannreynt hafi verið að reikningurinn hafi verið greiddur af Baugi. „Ég þarf að fá tækifæri til þess að skoða hvort þeir hafi fengið styrk sem mér var ekki kunnugt um," segir Sigurður G. Guðjónsson í samtali við fréttastofu. Sigurður sá um að greiða reikninga og gera upp prófkjörsbaráttu Björgvins en hann var ekki kosningastjóri eins og hann er titlaður í DV. „Mér er algjörlega ókunnugt um það hvort að Baugur hafi borgað eitthvað inn til þessa framboðs. Ef að það hefur verið gert þarf að stemma það af og sjá hvað hefur verið gert. Ég veit nákvæmlega hvaða peningar komu inn fyrir mína tilstilli og ég hef ekki séð nein gögn um það að Baugur hafi borgað þetta. Ef svo er hef ég verið algjörlega ómeðvitaður um það," segir Sigurður og bætir við að þetta komi betur í ljós síðar í dag þegar hann hefur nálgast nauðsynlegar bankaupplýsingar. „Ég þarf að sjá hvort 300 þúsund krónur hafi komið inn vegna þessa en það fæ ég bara að sjá á eftir, allt er þetta til í bókhaldi. Ég hef ekki logið neinu, ég sagði þeim bara að ég kannaðist ekki við það að Baugur hefði styrkt framboðið," segir Sigurður að lokum.
Mest lesið Ein leið í og úr hverfinu dragi úr öryggi íbúa Innlent Hlaut of þunga refsingu fyrir mistök Innlent Yfir 190 gestir Fabrikkunnar með nóróveiru síðasta sumar Innlent Engin gögn bendi til tengsla við Hamas Innlent „Í mínum huga alveg útilokað“ Innlent Hryðjuverkamaðurinn í Ósló fær þyngsta dóm sögunnar Erlent Neil Gaiman sakaður um kynferðisofbeldi Erlent „Ef þessi maður kemst út úr fangelsi mun hann drepa barnið mitt“ Innlent Leggja til íbúakosningu vegna framkvæmda Carbfix Innlent Lögreglan kölluð til er hundur lék lausum hala á Reykjanesbrautinni Innlent Fleiri fréttir Lauginni lokað eftir að lögn fór í sundur Gremja vegna golfbíla á meistaramóti Lögreglan kölluð til er hundur lék lausum hala á Reykjanesbrautinni Yfir 190 gestir Fabrikkunnar með nóróveiru síðasta sumar Engin gögn bendi til tengsla við Hamas Mikil fjölgun í greiningum á sárasótt og lekanda Leggja til íbúakosningu vegna framkvæmda Carbfix Hlaut of þunga refsingu fyrir mistök Ein leið í og úr hverfinu dragi úr öryggi íbúa „Í mínum huga alveg útilokað“ Sveitastrákur mætir með byssuna sína á Ólympíuleikana Stærðarinnar skilti sem ekkert má sýna Jarðgöng undir Miklubraut fýsilegri kostur Óhjákvæmilegt fyrir stjórnvöld að grípa inn í Milljarðar streyma úr landi með starfsemi veðmálafyrirtækja Lagabreytingin vegi að eldri borgurum og öryrkjum erlendis Vestmannaeyjabær höfðar skaðabótamál á hendur Vinnslustöðinni Bóndi þvingaður til að afhenda hrút Segja Ásgeir Helga hafa verið 20 mínútur í stæðinu Segja Grindavík alls ekki ónýta og vilja hleypa fólki inn Fjórar ferðir vegna heilbrigðisþjónustu fást nú endurgreiddar Skemmdu bíla í reiðiskasti áður en þeir flúðu lögreglu á rafskútu Dýrmætu vasaúri og silfurfesti stolið af byggðasafni „Ef þessi maður kemst út úr fangelsi mun hann drepa barnið mitt“ Rannsókn lokið á máli sem snýr að Polar Nanoq Fyrsta makrílfarmi vertíðarinnar landað í Neskaupstað Kári Garðarsson ráðinn framkvæmdastjóri Samtakanna 78 „Að láta taka sig ósmurt? Takk, en nei takk“ Albert neitaði sök Mikil tækifæri felist í að gera Þórsmörk að þjóðgarði Sjá meira