Viðskipti erlent

NRK hefur ekki áhyggjur af kostnaðinum við Eurovision

Norska ríkisútvarpið (NRK) hefur ekki áhyggjur af því að kostnaðurinn við að halda Eurovision í Osló á næsta ári muni skyggja á gleðina við að halda keppnina.

Á vefsíðunni e24.no er rætt við Sigurd Sandvin upplýsingafulltrúa NRK sem segist ekki hafa neinar áhyggjur af kostnaðinum. „Þetta þarf ekki að vera svo dýrt," segir Sandvin. „Og Noregur ætti að geta meðhöndlað kostnaðinn. Það yrði heiður fyrir NRK að halda keppnina.

Þess má geta að talið er að keppnin hafi kostað Rússa yfir fimm milljarða kr. Sandvin telur að ekki sé ástæða fyrir NRK að leggja jafnmikið í keppnina og Rússar gerðu. Nefnir hann að þegar keppnin var haldin í Finnlandi árið 2007 nam kostnaður finnska ríkisútvarpsins um 1,9 milljörðum kr.

Sandvin nefnir að upp í kostnaðinn komi styrkir frá bæði Evrópusambandinu og norska ríkinu og þar að auki komi tekjur af miðasölu. Og ekki megi gleyma jákvæðum áhrifum á ferðamannaiðnaðinn í Osló við að halda Eurovision.

Fram kemur í fréttinni að framleiðslufyrirtækið Dinamo Story er þegar í samningum um að leigja Telenor Arena, stærsta innanhússvið Noregs undir keppnina á næsta ári.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×