Formúla 1

Nýtt lið í Formúlu 1 stofnað í Bandaríkjunum

Nýja liðið var kynnt í sjónvarpsútsendingu hjá Speedtv í Bandaríkjunum.
Nýja liðið var kynnt í sjónvarpsútsendingu hjá Speedtv í Bandaríkjunum. Mynd: Kappakstur.is
Peter Windsor og Ken Anderson kynntu formlega nýtt Formúlu 1 lið sem þeir hafa stofnað í sjónvarpsstöðinni Speedtv í dag. Liðið mun keppa árið 2010 og kallast USF1.

"´Ég hef verið í Formúlu 1 í tugi ára og bæði ég og Ken erum með góð tengsl. Ken er framkvæmdarstjóri liðsins og ég keppnisstjóri liðsins. McLaren, Ferrari og BMW eru stór lið, en okkar lið verður minna í sniðum og snögg til athafna", sagði Windsor.

Windsor segir að liðið muni stíla inn á að veita áhofendum betri innsýn í Formúlu 1 en önnur lið hafi gert og það verði vinveitt áhorfendum. Liðið hefur ekki ákveðið hvaða ökumenn koma til greina, en margir ökumenn eru í skoðun, m.a. kvenkyns ökumaðurinn Danica Patrick sem hefur staðið sig vel í Indy Racing League.

USF1 verður til húsa í Chalotte í Norður Karólínu og búist er við að meirihluti liðsins verður skipaður bandarískum starfsmönnum, en mikil þekking er á akstursíþróttum á svæðinu.

Sjá ítarlega umfjöllun um USF1




Fleiri fréttir

Sjá meira


×