Einungis Samfylkingin hefur ákveðið að upplýsa um alla styrki 6. maí 2009 10:22
Samfylkingin er eini stjórnmálaflokkur landsins sem hyggst enn sem komið er birta upplýsingar um fjárstyrki til aðildarfélaga og fulltrúaráða flokksins vegna ársins 2006. Aðrir flokkar hafa ekki tekið ákvörðun um það hvort að upplýsingunum verði safnað saman og þær birtar opinberlega. Árið 2006 fóru fram sveitarstjórnarkosningar. Vegna umræðu um risastyrki FL-Group og Landsbankans til Sjálfstæðisflokksins birtu Samfylkingin, Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn yfirlit yfir fjárstyrki til landsflokkanna fyrir árið 2006. Jafnframt var upplýst að Vinstri grænir þáðu einn styrk umfram 500 þúsund krónur. Í framhaldinu ákvað Samfylkingin að kalla eftir upplýsingum um fjárstyrki til aðildarfélaga og fulltrúaráða flokksins vegna ársins 2006. Magnús Norðdahl, gjaldkeri flokksins, segir að þeirri vinnu sé ólokið og hann geti ekki gefið nákvæma dagsetningu hvenær samantektin muni liggja fyrir. „Það er talsvert af upplýsingum komið í hús en ekki allt. Þetta verður vonandi birt sem allra fyrst," segir Magnús sem jafnframt telur að allir flokkar eigi að birta samskonar upplýsingar og Samfylkingin safnar nú saman.Framsókn hefur ekki tekið ákvörðun Framsóknarflokkurinn hefur ekki tekið ákvörðun um að taka saman upplýsingar yfir fjárstyrkina. Sigfús Ingi Sigfússon, framkvæmdastjóri flokksins, segir að þessi mál verði tekin til umfjöllunar í landsstjórn Framsóknarflokksins á næsta fundi hennar síðar í mánuðinum.Sjálfstæðisflokkurinn upplýsir hugsanlega um styrkina „Við erum ekki búin að setja neina slíka vinnu í gang," segir Gréta Ingþórsdóttir, starfandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, aðspurð hvort flokkurinn hafi ákveðið að taka saman umræddar upplýsingar. Hún segir að meiningin sé að flokkarnir komi sér saman um niðurstöðu í nefnd um endurskoðun laga um fjármál stjórnmálaflokkanna. Sjálfstæðisflokkurinn muni þó ekki endilega bíða eftir niðurstöðu nefndarinnar og hugsanlega birta yfirlit yfir styrkina. „Formaðurinn hefur meðal annars sagt að hann sé tilbúinn til að opna bókhaldið einhver ár aftur í tímann," segir Gréta. Engir styrkir umfram 500 þúsund til aðildarfélaga VG Drífa Snædal, framkvæmdastýra Vinstri grænna, segir að enginn styrkur til flokksins árið 2006 hafi verið hærri en 500 þúsund krónur fyrir utan milljón krónu styrk frá Samvinnutryggingum. Þess vegna hafi hún ákveðið að kalla ekki eftir upplýsingum um fjárstyrki til aðildarfélaga flokksins. „Svæðisfélögin störfuðu undir sömu vinnureglum og flokkurinn um þetta 500 þúsund krónu mark og það fór ekkert yfir það." Fjárframlög til flokksins í Reykjavík í aðdraganda borgarstjórnarkosninganna var á bilinu fjórar til fimm milljónir króna, segir Drífa. „Þar voru fjárhagslega stóru umsvifin." Drífa útilokar ekki að upplýsingar um fjárstyrki til Reykjavíkurfélags flokksins árið 2006 verði teknar saman og birtar.
Tengdar fréttir Bankarnir þrír styrktu Framsóknarflokkinn Glitnir, Landsbankinn og Kaupþing styrktu Framsóknarflokkinn um samtals 8,5 milljón króna á árinu 2006.Fjárstyrkur Kaupþings var 4 milljónir. Hæsti styrkurinn kom hins vegar frá verktakafyrirtækinu Eykt sem styrkti flokkinn um 5 milljónir. 12. apríl 2009 17:10 VG með allt uppi á borði Drífa Snædal, framkvæmdastýra Vinstri Grænna, segir að flokkurinn hafi ávallt haft bókhald sitt opið. Hægt sé að nálgast endurskoðaða reikninga flokksins á heimasíðu hans aftur til ársins 2003. Reikningar flokksins hafi verið birtir frá því löngu áður en lög um að flokkarnir opni bókhald sitt tóku gildi árið 2007. Upplýst hafi verið um öll framlög umfram hálfa milljón króna. 8. apríl 2009 12:09 Sjálfstæðismenn opna bókhald: 81 milljón frá níu fyrirtækjum Sjálfstæðismenn birtu í dag á heimasíðu sinni lista yfir þau fyrirtæki sem styrktu flokkinn um meira en eina milljón á árinu 2006. Um er að ræða níu fyrirtæki sem greiddu samtals rétt tæpa 81 milljón í styrki. 10. apríl 2009 09:08 Samfylkingin fékk 36 milljónir frá 15 fyrirtækjum Samfylkingin fékk fimm milljónir króna í styrk frá Kaupþingi árið 2006. Þetta er hæsti styrkurinn sem greiddur var flokknum á því ári. 10. apríl 2009 17:10 Mest lesið Ætlar ekki að beita sér í máli starfsmanns Útlendingastofnunar Innlent Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Erlent Hljóti að vera komið að því að skoða öryggisgæslu við skóla Innlent „Þetta er bara ljótt“ Innlent „Ég vil ekki nokkurn tímann sjá neitt svona aftur“ Innlent Milljónir til almannatengla og átta sinnum meira en í fyrra Innlent Systir og amma drengs í meðferð létust í Suður-Afríku Innlent Eyjólfur í orlof og Inga þrefaldur ráðherra Innlent Fóru um borð í vélvana rússneskt skip Erlent „En hver sagði að þetta ætti að vera auðvelt?“ Innlent Fleiri fréttir Nú má heita Love, Tóní, Ranimosk og Draumur Kvartar til umboðsmanns og vonar að Vegagerðin sjái að sér Ætlar ekki að beita sér í máli starfsmanns Útlendingastofnunar „Ég vil ekki nokkurn tímann sjá neitt svona aftur“ Gyðingar á Íslandi upplifa aukinn ótta Ferðaþjónusta blómstrar í uppsveitum Árnessýslu „Þetta er bara ljótt“ Hljóti að vera komið að því að skoða öryggisgæslu við skóla Ætlar að skýra hvenær rjúfa megi þagnarskyldu Þagnarskylda heilbrigðisstarfsfólks og öryggisgæsla við grunnskóla Eyjólfur í orlof og Inga þrefaldur ráðherra Vegagerðin segir flóðin í Vík fyrirséð Fjölmiðlar, bókmenntir og hægrimennska á Sprengisandi „En hver sagði að þetta ætti að vera auðvelt?“ Milljónir til almannatengla og átta sinnum meira en í fyrra Grunuð um að koma til landsins til að brjóta á öldruðum Leggja hald á skip á alþjóðahafsvæði undan ströndum Venesúela Bindur vonir við Vor til vinstri Systir og amma drengs í meðferð létust í Suður-Afríku „Við erum pottþétt að koma út í mínus, hversu miklum vitum við ekki“ „Þetta er alveg ásættanlegur samningur“ Deildi nöfnum skjólstæðinga á Instagram Íslendingar þægileg fórnarlömb fyrir vasaþjófa „Að öllu óbreyttu mun þjóðvegurinn fara í sundur“ Vonbrigði í Vík og rýnt í Epstein-skjölin Morgundagurinn sá stysti á árinu Langtímaleigan 23 þúsund krónum dýrari á ári Grenjandi rigning og hífandi rok á aðfangadag Reyndi að komast inn á lögreglustöð með fíkniefni Svona á að raða í uppþvottavélina Sjá meira
Bankarnir þrír styrktu Framsóknarflokkinn Glitnir, Landsbankinn og Kaupþing styrktu Framsóknarflokkinn um samtals 8,5 milljón króna á árinu 2006.Fjárstyrkur Kaupþings var 4 milljónir. Hæsti styrkurinn kom hins vegar frá verktakafyrirtækinu Eykt sem styrkti flokkinn um 5 milljónir. 12. apríl 2009 17:10
VG með allt uppi á borði Drífa Snædal, framkvæmdastýra Vinstri Grænna, segir að flokkurinn hafi ávallt haft bókhald sitt opið. Hægt sé að nálgast endurskoðaða reikninga flokksins á heimasíðu hans aftur til ársins 2003. Reikningar flokksins hafi verið birtir frá því löngu áður en lög um að flokkarnir opni bókhald sitt tóku gildi árið 2007. Upplýst hafi verið um öll framlög umfram hálfa milljón króna. 8. apríl 2009 12:09
Sjálfstæðismenn opna bókhald: 81 milljón frá níu fyrirtækjum Sjálfstæðismenn birtu í dag á heimasíðu sinni lista yfir þau fyrirtæki sem styrktu flokkinn um meira en eina milljón á árinu 2006. Um er að ræða níu fyrirtæki sem greiddu samtals rétt tæpa 81 milljón í styrki. 10. apríl 2009 09:08
Samfylkingin fékk 36 milljónir frá 15 fyrirtækjum Samfylkingin fékk fimm milljónir króna í styrk frá Kaupþingi árið 2006. Þetta er hæsti styrkurinn sem greiddur var flokknum á því ári. 10. apríl 2009 17:10