Formúla 1

Formúlan finnur fyrir kreppunni

Felipe Massa sest um borð í nýja Ferrari bílinn.
Felipe Massa sest um borð í nýja Ferrari bílinn. mynd: kappakstur.is

Bernie Ecclestone og Bretar eru farnir að finna fyrir áhrifum kreppunnar eins og aðrir í heiminum þessa dagana. Honda liðið hætti þátttöku í Formúlu 1 á dögunum og rætt hefur verið hvort ríkisstjórn Bretlands komi liðinu til hjápar á einhvern hátt. Liðið sem er skipað 700 starfsmönnum á hugsanlegan rétt á styrk frá sérstökum neyðarsjóði.

Ecclestone vill þó að menn í Formúlu 1 geiranum sýni stillingu, því allir muni finna fyrir áhrifum kreppunnar. Hann ræddi málin lítillega við dagblaðið AS á ferðalagi um Spán, þar sem tvö mót verða haldin á þessu ári. Í Barcelona og í Valencia.

Ecclestone segir að miðaðverð sé í höndum mótshaldara og þeirra að ákveða hvort lækka skuli miðaverð í samræmi við efnahagsþrengingar. "Það munu allir þjást á þessum tímum og við verðum bara að vera þolinmóð í hvívetna", sagði Ecclestone.

Nokkrir auglýsendur hafa dregið saman seglin, m.a. ING bankinn sem styður Renault. Bankinn mun styðja liðið áfram en ekki auglýsa á brautum á árinu.

Þá hefur verið rætt um að ökumenn þurfi að lækka laun sín, en til þessa hafa þeir ekki tekið slíkt í mál. Launahæstur er Kimi Raikkönen sem er með yfir 50 miljónir dala í árslaun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×