Handbolti

Harpa Sif: Framtíðin blasir við þessu liði

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Harpa faðmar hér Florentinu Stanciu í leikslok
Harpa faðmar hér Florentinu Stanciu í leikslok Mynd/Anton Brink

Harpa Sif Eyjólfsdóttir og félagar hennar í Stjörnunni urðu Íslandsmeistarar í N1 deild kvenna í dag eftir 28-26 sigur á Fram í þriðja leiknum.

Harpa skoraði fimm mörk í leiknum og átti líka þrjár línusendingar sem gáfu mörk.

„Ég er að spila miklu stærra hlutverk hjá liðinu heldur en undanfarin ár og það er frábært að ná þá að vinna titilinn. Ég get bara ekki lýst þessari tilfinningu," sagði Harpa Sif Eyjólfsdóttir sem lék mjög vel í vörn og sókn hjá Stjörnunni í úrslitaeinvíginu.

„Ég get ekki sagt að mér finnist ég eiga meira í þessum titli en hinum. Það er alltaf liðsheildin sem vinnur þetta hvort sem maður spilar mikið eða lítið," segir Harpa og bætir við:

"Þetta er lið er ótrúlegt og við erum að spila á sextán og sautján ára stelpum sem taka við ábyrgðinni og eru frábærar," sagði Harpa.

Harpa hefur átt margar frábærar sendingar á félaga sína í úrslitakeppninni en í lokaleiknum í daf þá náði hún einnig að skora nokkur glæsileg mörk sjálf.

„Ég fór loksins að skora eitthvað í dag. Ég er mjög ánægð með varnarleikinn hjá liðinu því hann er búinn að vera ótrúlega góður. Við skorum alltaf okkar mörk," segir Harpa.

Það er búið að reyna mikið á Stjörnuliðið í vetur þrátt fyrir velgengina. „Það var rosalega erfitt að missa Birgit Engl og Önnu Úrsulu en það sýnir bara styrk liðsins að það kemur alltaf maður í manns stað," segir Harpa.

Harpa er einnig á því að Stjörnuliðið eigi eftir að vinna marga titla í viðbót.

„Þetta á ekkert eftir að breystast neitt og þetta verður svona áfram í Garðabænum á næsta ári. Ég held að meðalaldurinn í liðinu séu 19,5 ár þannig að framtíðin blasir við þessu liði," sagði Harpa að lokum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×