Formúla 1

Röng ákvörðun klúðraði Toyota sigri

Jarno Trulli varð þriðji í Bahrein á Toyota eftir að hafa verið fyrstur á ráslínu.
Jarno Trulli varð þriðji í Bahrein á Toyota eftir að hafa verið fyrstur á ráslínu.
John Howett forseti Formúlu 1 liðs Toyota segir að röng ákvörðun varðandi keppnisáæltun hafi klúðrað fyrsta sigri Toyota um síðustu helgi.

Jarno Trulli og Timo Glock voru fremstir á ráslínu í mótinu í Bahrein, en Trulli endaði í þriðja sæti og Glock í því sjötta.

"Ég tel að það sé í raun jákvætt að við erum svekktir. Fyrir nokkrum árum hefðum við verið himinlifandi með þriðja sæti, en núna eru við svekktir af því við eygðum sigur", sagði Howett.

"Það er jákvætt merki hvað framhaldið varðar. Trulli var í skottinu á Sebastian Vettel í baráttunni um annað sætið í lokin sem sýnir styrk bílsins. Brawn menn eru enn örlítið fljótari, en við erum nærri toppnum. Okkur hungrar í sigur, en við gerðum mistök varðandi keppnisáætlun okkar. Við vorum of íhaldsamir varðandi keppnisáætlun okkar, fórum aðra leið en keppinautarnir til að vera öruggir. Það gekk ekk upp. Menn verða að taka áhættu til að vinna, en við erum samt stoltir af árangri okkar og bíllinn er góður", sagði Howett.

Trulli og Glock eru í fjórða og fimmta sæti í stigakeppni ökumanna og Toyota er í þriðja sæti í stgakeppni bílsmiða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×