Rússar of blankir til að kaupa ný jakkaföt á Lenin 21. apríl 2009 09:41
Fjármálakreppan hefur leikið Rússland svo grátt að stjórnvöld þar í landi hafa ekki lengur efni á nýjum jakkafötum handa Lenin þar sem hann liggur smurður í opinni líkkistu sinni við Rauða torgið. Í frétt um málið í Ekstra Bladet segir að einn af ráðgjöfum Dimitri Medvedevs forseta Rússlands hafi nýlega kveðið uppúr með það að Lenin muni áfram liggja þar sem hann er þrátt fyrir að stjórnarandstaðan geri kröfu um að þessi fyrrum leiðtogi Sovétríkjanna sálugu sé jarðaður á eðlilegan hátt nú 85 árum eftir andlát hans. Margir Rússar standa enn í þeirri trú að þessi fyrrum einn blóðugasti einræðisherra í sögunni sé sómi Rússlands, sverð þess og skjöldur. En vandamálið nú er að ekki er til fjármagn til þess að viðhalda líki Lenins á sómasamlegan hátt. Ekstra Bladet vitnar í frétt í rússneska blaðinu Trud þar sem fram kemur að eftir síðustu endurnýjun á smurningu Lenins hafi ekki reynst nægilegt fé eftir til að geta keypt ný jakkaföt á líkið. Venjan hefur verið sú að þriðja hvert ár hefur líkið verið klætt í ný jakkaföt. Þau eru handsaumuð og úr forláta svissneskri ull. Þetta voru föt sem Lenin sjálfur var vanur að kaupa þegar ferill hans stóð sem hæst. Nú eru Rússar of blankir til að splæsa í ný jakkaföt og eflaust snýr Lenin sé við í gröfinni við þessar fregnir að sögn Ekstra Bladet.
Mest lesið Verulega minni verðbólga Viðskipti innlent Að hætta að vera vandræðaleg í nýrri vinnu Atvinnulíf Mun leiða ferskvatnseldi hjá First Water Viðskipti innlent Frá RÚV til Coca-Cola Viðskipti Icelandair hækkað um ríflega fjórðung Viðskipti innlent „Fjárfestar eru bara venjulegt fólk“ Atvinnulíf Ummæli seðlabankastjóra „skringileg“ Viðskipti innlent Sátt Eimskipa við Samkeppniseftirlitið kom Samskipum ekki við Viðskipti innlent Óvíða sem flugstarfsemi er jafn stór þáttur í efnahagslífi þjóðar Viðskipti innlent Enginn þarf að vera giftur lánunum sínum út lánstímann Samstarf Fleiri fréttir Kærasta rafmyntamógúls í fangelsi vegna FTX-svikanna Stýrivextir lækkaðir í Bandaríkjunum í fyrsta sinn í fjögur ár Tupperware lýsir yfir gjaldþroti Snúa við dómnum og dæma Bonnesen í fangelsi Gera Apple að greiða tvær billjónir í skatta Skaut samstundis niður tillögur um efnahagslega björgun Evrópu Bein útsending: Apple kynnir nýjustu græjurnar Hætta steðjar að lífsgæðum Evrópubúa Volvo heykist á algjörri rafvæðingu árið 2030 Þessari rafmagnsflugvél er ætlað að flytja 90 farþega Zuckerberg harmar að hafa látið undan þrýstingi Bidens Breska stjórnin samþykkir að efla London City-flugvöll Sádar sagðir byrjaðir að skrúfa fyrir kranann Susan Wojcicki er látin Ummæli Trump vekja áhyggjur af sjálfstæði seðlabanka Hlutabréfin ruku aftur upp degi eftir hrun Google beið lægri hlut í risavöxnu einokunarmáli Hrun í hlutabréfamörkuðum ytra Sjá meira