Innlent

Kosið um framtíð Borgarahreyfingarinnar

Borgarahreyfingin kynnt til leiks 4. mars. Mynd/GVA
Borgarahreyfingin kynnt til leiks 4. mars. Mynd/GVA
Kosið verður um það í dag hvort Borgarahreyfingin verði áframhaldandi hreyfing eða hefðbundinn stjórnmálaflokkur á fyrsta landsfundi hreyfingarinnar á Grand hóteli. Hundrað manns sitja nú fundinn og fer stjórnarkjör fram síðdegis.

Borgarahreyfingin var stofnuð í vor og eru 650 skráðir félagar. Hreyfingin fékk fjóra þingmenn kjörna í síðustu kosningum. Undanfarið hafa miklar deilur verið innan flokksins um fólk og málefni og nýlega sagði Þráinn Bertelsson þingmaður hreyfingarinnar sig úr flokknum og starfar nú sem óháður þingmaður. Þá lét framkvæmdastjóri þingflokksins af störfum og formaður stjórnar Borgarhreyfingarinnar sagði skilið við hann.

Margrét Rósa Sigurðardóttir, stjórnarmaður, segir að kosið verði um tvær tillögur á landsfundinum í dag. Þær snúast um hvort Borgarahreyfingin eigi að verða hefðbundinn stjórnmálaflokkur sem bjóði fram í næstu sveitarstjórnarkosningum eða að Borgarahreyfingin verðir áfram hreyfing grasrótarinnar og vinni samkvæmt fyrirliggjandi stefnu.

Um 100 manns sitja nú fundinn en ný stjórn verður kjörin síðdegis. Framboðsfrestur rennur út klukkan þrjú.


Tengdar fréttir

Formaður Borgarahreyfingarinnar: Við gerðum byrjendamistök

Baldvin Jónsson, formaður Borgarahreyfingarinnar, telur flokkinn hafa gert byrjendamistök eftir að hafa náð frábærum árangri í kosningunum í vor. Þetta kom fram í skýrslu stjórnar sem Baldvin flutti eftir að landsfundur Borgarahreyfingarinnar hófst í morgun. Hann sagði núveranandi ríkisstjórn í litlu sem engu hafa breytt út frá stefnu fyrri ríkisstjórnar.

Ný stjórn Borgarahreyfingarinnar kjörin í dag

Landsfundur Borgarahreyfingarinnar hófst klukkan níu í morgun en hann fer fram á Grand Hótel í Reykjavík. Á eftir verða skipulags- og lagabreytingar ræddar sem og skýrslur stjórnar og þingmanna. Stjórnarkjör fer fram klukkan fjögur í dag en tveir hópar hafa tilkynnt um framboð í stjórn flokksins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×