Fótbolti

Tímabilið búið hjá Marquez

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Rafael Marquez eftir að hann meiddist í gær.
Rafael Marquez eftir að hann meiddist í gær. Nordic Photos / AFP
Rafael Marquez leikur ekki meira með Barcelona á leiktíðinni en hann meiddist í leiknum gegn Chelsea í Meistaradeildinni í gær.

Marquez meiddist skyndilega þegar hann var að rekja boltann áfram og féll í grasið án þess að nokkur annar leikmaður kæmi við hann.

Komið er í ljós að hann er með sködduð liðbönd í vinstra hné.

Carles Puyol kom inn á sem varamaður fyrir Marquez í leiknum en hann fékk gult spjald og verður í banni í síðari viðureigninni gegn Chelsea.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×