Þetta snerist ekki bara um að gera Beckham ánægðan 8. mars 2009 17:19 AFP
Nú hefur verið staðfest að David Beckham hjá LA Galaxy muni leika með AC Milan til loka leiktíðar á Ítalíu. Forráðmenn LA Galaxy segja að samningaviðræður hafi gengið jafn erfiðlega og raun bar vitni vegna þess að ítalska félagið hafi gleymt því að leikmaðurinn sé samningsbundinn Galaxy. "Mér þykir leiðinlegt hvað þetta tók langan tíma, sérstaklega fyrir David og stuðningsmenn Galaxy," sagði yfirmaður Galaxy, sem staðfesti í samtali við LA Times að félögin muni spila æfingaleik í júlí í sumar. "Milan hélt að þetta væri ekkert mál af því David hafði áhuga á að spila á Ítalíu, en hann á ekki samninginn sinn sjálfur. Það er Galaxy sem á samninginn og þetta snerist því um annað og meira en að gera David ánægðan. Þetta er fín lausn fyrir alla. David klárar tímabilið á Ítalíu og kemur svo hingað. Okkur hlakkar mikið til að leika við Milan í júlí," sagði formaður Galaxy. Beckham sjálfur er líka hæstánægður með niðurstöðuna. "Nú get ég spilað með Milan og farið svo aftur til Bandaríkjanna að byggja upp fótboltann þar í landi. Það væri frábært ef ég gæti hjálpað Milan að komast í Meistaradeildina og kláraði svo tímabilið með því að koma Galaxy í úrslitakeppnina og vinna bikarinn," sagði Beckham.
Ítalski boltinn Mest lesið Kennir kynlífi með kærastanum um að hún féll á lyfjaprófi Sport Neitar að tjá sig um ósættið við Kristófer: „Á milli mín og hans“ Körfubolti Íslandsmethafinn segir enga virðingu borna fyrir íþróttafólkinu: „Út í hött“ Sport Missti tönnina, tók hana upp og fór í bikarúrslit Handbolti Magnús Orri tekur við formannsstólnum af Páli Íslenski boltinn Ólympíufari dæmdur í 21 árs fangelsi fyrir barnaníð Sport Ekki lengur hægt að vera allsber og taka orminn Körfubolti Vilja banna fullorðnum leikmönnum að nota barnalegghlífar Fótbolti Sektin hans Messi er leyndarmál Fótbolti Tekinn af velli eftir að hann fékk morðhótanir úr stúkunni Fótbolti Fleiri fréttir „Þú ert að tengja þetta við Rashford“ Kjartan Kári verður áfram hjá FH eftir að hafa hafnað Val Liverpool rak stjóra kvennaliðsins Magnús Orri tekur við formannsstólnum af Páli Vilja banna fullorðnum leikmönnum að nota barnalegghlífar Tekinn af velli eftir að hann fékk morðhótanir úr stúkunni Sektin hans Messi er leyndarmál Ten Hag segir leikmenn í dag of viðkvæma Elísabet byrjar á tveimur töpum Orri og félagar þurfa að koma til baka á Santiago Bernabéu Komnir með þrettán stiga forskot Markalaust í Skírisskógi en Everton heldur áfram að safna stigum Fimm mörk, rautt spjald og kærkominn sigur United Haaland sneri aftur og var hetjan Atli Sigurjóns framlengir við KR Darwin Núnez langt frá efstu mönnum í klúðruðum dauðafærum Labbar inn í stjórn UEFA án kosningar og fær fyrir 23 milljónir á ári Tannvesen á Mbappé sem spilar ekki í kvöld Ronaldo sýndi óvænta óeigingirni Ótrúlegir taktar á æfingu hjá Pablo Punyed Yngri bróðir Benoný Breka yfirgefur líka KR „Fyrr skal ég dauður liggja“ Slot í bann og stýrir Liverpool ekki í kvöld Allt annað en sáttur með Frey FH-ingar æfðu á grasi í febrúar Síðhærði Færeyingurinn snýr aftur norður Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Lögreglumaður var fótboltabulla í felum Kveðst viss um eftirsjá Gylfa: „Hefðum unnið mótið í fyrra með hann“ „Þær eru skíthræddar við okkur í lokin“ Sjá meira