Formúla 1

Ferrari tapaði máli gegn FIA

Móðurstöð Ferrari á mótssvæðum, en lðið keppir í Mónakó um helgina.
Móðurstöð Ferrari á mótssvæðum, en lðið keppir í Mónakó um helgina. Mynd: Getty Images
FIA er í fullum rétti að setja 40 miljón sterlingspunda útgjaldaþak á Formúlu 1 lið á næsta ári að mati dómstóls í París. Niðurstaða í kæru Ferrari gegn FIA var birt í dag.

"Ekkert keppnislið á að geta sig á þann stall að vera æðri en íþróttin sem það stundar. FIA og keppnislið munu núna vinna að því að gera Formúlu 1 að íþrótt sem tekur mið af efnahagsástandinu og því umhverfi sem við búum", við sagði Max Mosley forseti FIA eftir dóminn. Hann hefur barist fyrir því að keppnislið minnki rekstrarkostnað til að þau haldi velli til langframa.

Fjölmargir bílaframleiðendur auk Ferrari eru ósáttur við útgjaldaþakið, en á móti kemur að 8 ný liði vilja komast að á næsta ári, ef nýjar reglur taka gildi varðandi rekstrarkostnað.

Frestur til að sækja um þátttaöku í Formúlu 1 2010 rennur út 29. maí og samtök Formúlu 1 liða funda um málið í Mónakó um næstu helgi. Ferrari hefur gangrýnt gæði þeirra liða sem vilja keppa á næsta ári og segja þau ekki í sama gæðaflokki og þau lið sem keppa í dag.

Sjá yfirlýsingu Ferrari






Fleiri fréttir

Sjá meira


×