Sport

Khan: Hef aldrei æft jafn mikið fyrir bardaga

Ómar Þorgeirsson skrifar
Amir Khan.
Amir Khan. Nordic photos/AFP

Breski hnefaleikakappinn Amir Khan er tilbúinn í slaginn gegn WBA-léttveltivigtar meistaranum Andreas Kotelnik en þeir mætast í hringnum í MEN-höllinni í Manchester á laugardagskvöld.

Khan segist aldrei hafa verið í betra líkamlegu ásigkomulagi og veit hvernig best sé að berjast við Úkraínumanninn.

„Kotelnik heldur höndunum alltaf hátt uppi og ég verð að beita mikið af skrokkhöggum og vera með góða fótavinnu gegn honum. Ég og Freddie [Roach, þjálfari Khan] erum með áætlun a og áætlun b og ég er sannfærður um að þetta virki vel hjá okkur. Ég hef aldrei æft jafn mikið fyrir einn bardaga og verð tilbúinn þegar bjallan hringir í fyrstu lotu," segir hinn 22 ára gamli Khan.



Box



Fleiri fréttir

Sjá meira


×