Formúla 1

Ferrari og McLaren verða að vinna

Kimi Raikkönenm fyrrum meistari áritar fyrir æsta spænska áhugamenn á Barcelona brautinni.
Kimi Raikkönenm fyrrum meistari áritar fyrir æsta spænska áhugamenn á Barcelona brautinni. Mynd: Getty Images

Ferrari og McLaren liðin verða að taka til hendinni í Formúlu 1 mótinu á Spáni um helgina. Fimmta mót ársins verður ræst af stað á sunnudag og liðin tvö hafa ekki unnið mót, né hafa ökumenn liðsins komist á verðlaunapall.

Á fyrstu æfingu í morgun lagði forystumaðurinn Jenson Button hjá Brawn liðinu línurnar með því að ná besta tíma, en önnur æfing er í hádeginu. Button er með 12 stiga forskot í stigakeppni ökumanna eftir 3 sigra í 4 mótum.

Öll lið mæta með verulega endurbætta bíla og flest lið eru kominn með tvöfalda loftdreifa aftan á bílanna, sem Brawn, Toyota og Williams riðu á vaðið með. Önnur lið kærðu búnaðinn en FIA taldi búnaðinn fullkomlega löglegan.

Það er lykilatriði fyrir Ferrrari og McLaren að ná góðum árangri í næstu 2-3 mótum ætli liðin að vera með í toppslagnum. Sebastian Vettel hjá Red Bull er í þriðja sæti í stigamótinu og hann segir lið sitt ætla að berjast um titilinn.

Button segir of snemmt að spá í titilinn enn sem komið er.

"Það eru bara fjögur mót af sautján búinn, en við berjumst um sigur í hverju móti fyrir sig. Það þýðir ekkert fyrir mig að ætla að fara slaka á og verja stigaforskot mitt. Þá missi ég bara fókusinn", segir Button.

Nánar um mótshelgina






Fleiri fréttir

Sjá meira


×