Viðskipti erlent

Landbúnaðarsjóður stærsti lánveitandi í fasteign Magasin

Það kemur svolítið á óvart að Lánastofnun landbúnaðarins í Danmörku, DLR, er stærsti lánveitandinn í fasteigninni sem hýsir Magasin du Nord sem aftur er að mestu í eigu Straums.

Þetta kemur fram í ítarlegri grein um stöðu mála hjá Magasin du Nord og Illum í blaðinu Berlinske Tidende í dag.

DLR hefur lánað 935 milljónir danskra kr. eða rúmlega 19 milljarða kr. til fasteignafélagsins Kongens Nytorv Aps. Félag þetta var áður í tæplega 50% eigu Hólakots áður en Straumur tók yfir reksturinn nú eftir áramótin. Næststærsti lánveitandinn er svo þýska fjármálafyrirtækið Hypo Real með lán upp á 124 miljónir danskra kr. eða um 2,1 milljarða kr..

Þar sem DLR má aðeins lána upp að 60% af fasteignamati eigna hefur stofnunin metið Kongens Nytorv upp á 1,5 milljarða danskra kr. eða tæplega 30 milljarða kr. er lánið var veitt. Fasteignasalar efast um að þetta flaggskip danska verslunarflotans sé svo mikils virði í dag.

Bent Andersen forstjóri DLR er þó pollrólegur með lánaviðskiptin við Kongens Nytorv. Hann segir í samtali við Berlinske að hann sé viss um að raunverulegt virði fasteignarinnar sé langt fyrir ofan milljarð danskra kr..

Töluverður orðrómur hefur verið í gangi um að bæði Magasin og Illum séu til sölu þessa stundina. Markaðurinn er hinsvegar erfiður vegna fjármálakreppunnar og óvíst hvort reynt verði að selja aðra hvora eða báðar verslanirnar í náinni framtíð.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×