Sport

Arreola og Klitschko mætast í Los Angeles

Ómar Þorgeirsson skrifar
Chris Arreola.
Chris Arreola. Nordic photos/AFP

Nú er ljóst WBC-þungavigtarmeistarinn Vitali Klitschko mun reyna að verja titil sinn gegn Chris Arreola en búið er að skipuleggja bardagann sem mun fara fram 26. september í Staples Center í Los Angeles.

Lengi stóð til að Úkraínumaðurnn Klitschko myndi mæta Bretanum David Haye en ekkert varð að því þar sem Haye kvað Klitschko taka of mikinn pening fyrir bardagann og það opnaði leið fyrir Bandaríkjamanninn Arreola.

Arreola er einmitt frá Los Angeles og ætti því að njóta mikils stuðnings á heimavelli sínum en Klitschko er reyndar heldur ekki óvanur að berjast í Bandaríkjunum.

Arreola varð efstur á blaði meðal áskorenda með því að klára 24 af 27 sigrum sínum í hringnum með rothöggi og meðal þeirra var til að mynda Jameel McCline sem kom einnig til greina fyrir bardaga við Klitschko.







Box



Fleiri fréttir

Sjá meira


×