Lífið

Á toppnum í Færeyjum og á Íslandi

Friðrik Ómar og Jógvan lentu í pönnukökuveislu hjá foreldrum Jógvans í Klakksvík. Þeir félagar árita plötu sína í Skífunni í Kringlunni klukkan 14 í dag.
Friðrik Ómar og Jógvan lentu í pönnukökuveislu hjá foreldrum Jógvans í Klakksvík. Þeir félagar árita plötu sína í Skífunni í Kringlunni klukkan 14 í dag.

„Mér finnst markmiðinu vera náð með þessu. Að kynna íslensk lög fyrir Færeyingum. Síðan er það næsta verkefni að koma færeyskum lögum á toppinn hér,“ segir Friðrik Ómar.

Félagarnir Friðrik og hinn færeyski Jógvan eru í efsta sæti vinsældalista bæði á Íslandi og í Færeyjum. Hér heima er plata þeirra Vinalög í efsta sæti Tónlistans en í Færeyjum er Tú nart við hjartað á mær (Þú komst við hjartað í mér) í flutningi Jógvans í efsta sæti „Hit­listans“.

Söngfuglarnir tveir fóru til Færeyja um síðustu helgi og fengu mjög góðar viðtökur. „Það var alveg rosalega gaman að koma þangað. Við spiluðum í plötubúð í bænum og plöturnar ruku alveg út.“

Fordómar gagnvart samkynhneigðum hafi verið töluverðir í Færeyjum í gengum árin og hafa margir þurft að flytja úr landi eftir að hafa komið út úr skápnum. Friðrik varð ekki var við neina fordóma í heimsókn sinni. „Þetta er alltaf blásið upp alveg eins og þegar ég fór í Eurovision. Maður vonar að þeim dögum fari að ljúka að þessu sé stillt upp svona og að maður sé réttdræpur fyrir að vera „gay“. Sem betur fer hafa þessi mál þróast alls staðar, sérstaklega í Skandinavíu, til betri vegar. Þvert á móti voru Færeyingar höfðingjar heim að sækja.“

Friðrik og Jógvan notuðu tækifærið og heimsóttu æskuslóðir hins síðarnefnda í Klakksvík og lentu í pönnukökuveislu hjá mömmu Jógvans.

„Það var mjög skemmtilegt. Kjötskrokkarnir héngu í skúr fyrir aftan því þau voru að búa til skerpukjöt fyrir jólin,“ segir Friðrik. - fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.