Handbolti

Fram sló út Hauka - Valur nældi í oddaleik

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ásta Birna og félagar í Fram eru komnar í úrslit.
Ásta Birna og félagar í Fram eru komnar í úrslit. Mynd/Valli

Fram-stúlkur komu öllum á óvart í kvöld með því að slá deildarmeistara Hauka út úr úrslitakeppni N1-deildar kvenna. Fram vann annan leik liðanna í kvöld, 34-32, og rimmuna 2-0.

Leikurinn var æsispennandi og þurfti að framlengja. Þar voru taugar Fram-liðsins sterkari.

Einar Jónsson, þjálfari Fram, var afar kátur eftir leikinn og sagði við HSÍ TV að hann hefði aldrei verið hræddur. Hann sagði sitt lið einfaldlega vera í miklu betra formi en Haukaliðið.

Andstæðingur Fram í úrslitum Íslandsmótsins verður annað hvort Stjarnan eða Valur. Oddaleik þarf hjá þeim eftir að Valur vann í kvöld, 28-23.

Oddaleikurinn fer fram í Garðabæ á föstudaginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×