Lífið

Dikta fagnar nýrri breiðskífu í kvöld

Hljómsveitin Dikta
Hljómsveitin Dikta Mynd/Anton
Ný plata hljómsveitarinnar Diktu birtist í verslunum 16. nóvember, eftir fjögurra ára bið, en á plötunni Get It Together má meðal annars finna lögin Let Go og Just Getting Started. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sveitinni.

„Þessi frábæru lög ættu að vera allflestum að góðu kunn en þau hafa bæði hljómað reglulega í útvarpstækjum landsmanna. Hið síðarnefnda var t.d. annað vinsælasta lag Rásar 2 á síðasta ári. Þetta meistaraverk er uppfullt af ódauðlegum tónsmíðum þar sem tvinnað er saman frábærum textum og undurfögrum laglínum á eftirminnanlegan hátt.

Sveitin hefur spilað á fjölmörgum tónleikum um allan heim og hefur orð á sér fyrir að vera frábær á sviði. Platan var hljóðrituð í sumar af sveitinni sjálfri en til að reka smiðshöggið á snilldina fékk hljómsveitin til liðs við sig sænska upptökustjórann Jens Bogren til að hljóðblanda verkið. Síðasta plata hljómsveitarinnar Hunting For Happiness kom út árið 2005 og hlaut frábæra dóma hlustenda og gagnrýnenda, m.a. 5/5 í Mbl. og var valin ein af 100 bestu plötum Íslandssögunnar. Á Get It Together hefur hljómsveitin Dikta sig til flugs og nær að skipa sér sess sem ein fremsta rokkhljómsveit Íslands.

Í kvöld mun Dikta halda upp á útgáfu plötunnar á Nasa við Austurvöll. Verður platan spiluð í heild sinni og verður öllu til tjaldað til að gera kvöldið sem ógleymanlegast fyrir alla viðstadda. Eins og þeir sem hafa séð Diktu á sviði geta vitnað um má búast við flugeldasýningu fyrir öll skilningarvit og mun enginn fara ósnortinn heim," setir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.