Viðskipti erlent

Gjaldeyrir flæðir til Dana, varasjóðurinn yfir 9.000 milljarðar

Gjaldeyrir streymir inn til Danmerkur þessa daganna og segir í dönskum fjölmiðlum að seðlabanki landsins þyrfi að stækka gjaldeyrisforðageymslur sínar af þessum sökum. Gjaldeyrisvarasjóður Danmerkur hefur aldrei verið meiri, nemur nú rúmlega 374 milljörðum danskra kr. eða yfir 9.000 milljörðum kr.

 

Samkvæmt frétt um málið í Jyllands Posten stækkaði gjaldeyrisvarasjóðurinn um 37,6 milljarða danskra kr. í ágústmánuði sem er einnig met.

 

Danski seðlabankinn reyndi að bregðast við þessu mikla innstreymi gjaldeyris með því að lækka stýrivexti tvisvar í mánuðum um 0,2 prósentustig í hvort sinn. Eru stýrivextirnir nú í 0,25% og var ákveðið að halda þeim óbreyttum í morgun. S.l. haust stóðu þessir vextir hinsvegar í 4,75%.

 

Gjaldeyrisvarasjóður Danmerkur stóð í tæplega 212 milljörðrum danskra kr. um síðustu áramót en á síðustu tíu árum hefur hann að meðaltali numið um helming af því sem hann er nú.

 

Fram kemur í frétt Jyllands Posten að á sama tíma og gjaldeyrisvarasjóðurinn stækkar hefur gengið dönsku krónunnar haldist stöðugt gagnvart evrunni eða í kringum 7,4 dkr. fyrir evruna.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×