Fótbolti

Anderson: Hleyp um nakinn ef ég skora

Nordic Photos/Getty Images

Brasilíumaðurinn Anderson hjá Manchester United hefur enn ekki skorað mark í alvöru leik fyrir félagið og vill gjarnan setja sitt fyrsta í úrslitaleik meistaradeildarinnar annað kvöld.

Anderson er mikill háðfugl og stóð ekki á svörum sínum þegar breska blaðið Sun spurði hann út í markaleysið.

"Ég er bara búinn að skora tvö mörk - bæði úr vítum. En ég er búinn að ákveða hvernig ég fagna ef ég skora í úrslitaleiknum. Þá ríf ég mig úr öllum og hleyp nakinn í kring um völlinn," sagði Anderson í léttum dúr.

Hann segist ekki hafa áhyggjur af markaleysinu. "Það angrar mig ekki neitt," sagði Brasilíumaðurinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×