Sport

Khan setur stefnuna á Bandaríkin

Ómar Þorgeirsson skrifar
Amir Khan.
Amir Khan. Nordic photos/AFP

Nýkrýndur WBA-léttveltivigtar heimsmeistari í hnefaleikum Amir Khan hefur gefið í skyn að hann ætli ekki að berjast næst við landa sinn Ricky Hatton eins og margir voru búnir að spá að myndi gerast.

Hinn 22 ára gamli Khan vill fara til Bandaríkjanna og berjast við þá bestu í bransanum.

„Ég vill mæta einhverjum af stóru nöfnunum og berjast í Bandaríkjunum. En það er nú einu sinni þannig að þegar þú ert heimsmeistari þá þarftu ekki lengur að elta andstæðinga, þeir koma til þín," segir Khan.

Búist er við því að Dimitri Salita gæti orðið næsti andstæðingur Khan í hringnum en Kendall Holt og Marcos Maidana koma einnig til greina.





Box



Fleiri fréttir

Sjá meira


×